Z
Útlit
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Z eða z (borið fram zeta) er 26. bókstafurinn í latneska stafrófinu. Z er einn af hinum fjórum viðbótarbókstöfum íslenska stafrófsins (hinir þrír eru c, q og w)[1] en það var fellt niður úr íslenska ritmálinu 5. september 1973 til að einfalda íslenska stafsetningu.[2]
Enn er leyft að nota zetuna í sérnöfnum af erlendum uppruna (t.d. Zakarías, Zophonías, Zimsen og svo framvegis)[1] og ættarnöfnum sem hafa verið gerð af manna nöfnum og hafa tannhljóð í enda stofns (eins og t.d. Haralz, Eggerz, Sigurz o.s.frv.).[1][3] Örfá tökuorð eins og „pizza“ eru enn oft skrifuð með zetu.
Bókstafurinn táknar raddað tannbergsmælt önghljóð í alþjóðlega hljóðstafrófinu.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 3 „Hvenær féllu c, q, z og w úr íslenska stafrófinu og hvers vegna?“. Vísindavefurinn.
- ↑ Guðmundsson, Brynjólfur Þór (4. september 2023). „„Vandræðabókstafurinn" sem var settur út af sakramentinu - RÚV.is“. RÚV. Sótt 23 júlí 2026.
- ↑ „Hvers vegna er bókstafurinn z notaður til að tákna svefn í myndasögum?“. Vísindavefurinn.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Hvers vegna var bókstafurinn z svona mikið notaður á Íslandi en því svo hætt?; af Vísindavefnum
- Er réttmætt að skrifa zetu inni í orðum í dag?; af Vísindavefnum
- Skýrleiki íslenzks ritmáls og z-stafsetning; grein í Morgunblaðinu 1977[óvirkur tengill]
- Enn um Z...; grein í Morgunblaðinu 1977[óvirkur tengill]
- Annars allir drepnir; grein í Morgunblaðinu 1976[óvirkur tengill]
- Málrækt - zeturækt; grein í Morgunblaðinu 1974 Geymt 5 mars 2016 í Wayback Machine, bls. 25
- Gagngerð skoðun á stafsetningarreglum að hefjast; grein í Morgunblaðinu 1975[óvirkur tengill]
- Velvakandi; grein í Morgunlaðinu 1967[óvirkur tengill]
