856
Útlit
| Árþúsund: | 1. árþúsundið |
|---|---|
| Aldir: | |
| Áratugir: | |
| Ár: |
856 (DCCCLVI í rómverskum tölum) var 56. ár 9. aldar og hlaupár sem hófst á miðvikudegi samkvæmt júlíska tímatalinu.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- 15. mars - Mikael 3. keisari batt enda á stjórn móður sinnar, Þeódóru, og gerði Bardas frænda sinn að ríkisstjóra.
- Karl sköllótti lét Erispoe hertoga Bretagne Maine eftir í skiptum fyrir bandalag gegn víkingum.
- 1. október - Aðalúlfur af Wessex gekk að eiga Júdit af Flandri, dóttur Karls sköllótta.
- Nóvember - Jarðskjálfti reið yfir Kórintu í Grikklandi þar sem 45.000 fórust.
- 3. desember - Jarðskjálfti reið yfir Túnis þar sem 45.000 fórust.
- 22. desember - Jarðskjálfti reið yfir Damghan (þar sem nú er Íran) þar sem 200.000 fórust.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Li Maozhen, kínverskur stríðsherra og konungur (d. 924).