close

Örugg og einföld reikningsviðskipti

Rafrænar beiðnir frá Símanum Pay einfalda söluferlið, tryggja heimildir úttektaraðila og spara tíma í bókhaldi.

Image
Image

Ný leið til að vera með úttektir á hreinu

Einfaldari og öruggari reikningsviðskipti með rafrænni staðfestingu áður en sala fer fram.
Image

Örugg viðskipti

Rafrænar beiðnir eru stafræn lausn frá Síminn Pay sem gerir reikningsviðskipti á milli söluaðila og úttektaraðila hraðvirk og örugg. Engar beiðnablokkir, enginn pappír, ekkert vesen.
Image

Einföld afgreiðsla

Söluaðilar staðfesta í rauntíma bæði auðkenni og heimildir viðskiptavina sinna áður en sala í reikning á sér stað og úttektaraðilar geta stýrt hvaða starfsmenn sínir hafa heimildir, hversu háar og á hvaða stöðum.
Image

Skilvirkara bókhald

Rafrænar beiðnir einfalda úttektarferlið, tryggja heimildir og spara tíma í bókhaldi hjá bæði söluaðilum og úttektaraðilum. Öryggi eykst til muna og lágmarkar m.a. líkur á röngum eða fölsuðum beiðnum.
Image

Einfalt ferli í þremur skrefum

1

Slá inn símanúmer

Við afgreiðslu slær söluaðili inn símanúmer viðskiptavinar.
2

Auðkenning & heimild

Viðskiptavinur fær meldingu um að auðkenna sig og kerfið staðfestir að heimild til úttektar sé til staðar.
3

Staðfest sala

Söluaðili fær staðfestingu og klárar afgreiðsluna.

Hver er ávinningurinn?

Image
Öruggari viðskipti
Staðfestir auðkenni og heimildir áður en sala fer fram.
Image
Rétt bókun
Bókunarupplýsingar fylgja sjálfkrafa með reikningi.
Image
Heimildir tryggðar
Tryggir að réttir aðilar hafi heimild til úttektar.
Image
Minni handavinna
Engin þörf á handvirkri staðfestingu eða símtölum.
Image
Hraðari afgreiðsla
Söluaðilar geta afgreitt viðskiptavini hraðar og öruggar.
Image
Skilvirkari vinnsla
Dregur úr leiðréttingum, villum og óþarfa eftirvinnu.
Image
Engin beiðnablokk
Pappírsferlið heyrir sögunni til.
Image
Einföld innleiðing
Lausnin er innleidd á einfaldan og hraðan hátt.
Image

Viltu einfaldari reikningsviðskipti?

Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar um hvernig rafrænar beiðnir geta einfaldað ferlið hjá þér.